Upplýsingar



Hvað er „Jól í skókassa“?

„Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa.
Fyrir jólin 2004 ákvað hópur ungs fólks innan KFUM & KFUK að láta reyna á verkefnið hér á landi. Undirtektirnar voru frábærar og söfnuðust rúmlega 500 kassar það árið. Verkefnið hélt svo áfram að spyrjast út og árið 2005 urðu skókassarnir 2600. Sú tala hefur síðan tvöfaldast því undanfarin ár hafa borist í kringum 5000 gjafir. Í ár stefnum við að því að gera enn betur.


Hvert fara skókassarnir?

Í ár, líkt og síðastliðin ár, verða skókassarnir sendir til Úkraínu. Í Úkraínu búa um 46 milljónir manna. Atvinnuleysi er þar mikið og ástandið víða bágborið. Á því svæði þar sem jólagjöfunum verður dreift ríkir mikil örbirgð. Íslensku skókössunum verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Kirkjan í Úkraínu er rússnesk rétttrúnaðarkirkja, en KFUM í Úkraínu starfar innan þeirrar kirkjudeildar. Aðalskipuleggjandi dreifingarinnar í Úkraínu er faðir Evheniy Zhabkovskiy sem komið hefur hingað til lands í heimsókn og m.a. kynnt sér starf KFUM og KFUK hér á landi.


Hvert á ég að skila skókassanum mínum?

Tekið er á móti skókössum í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg alla virka daga kl. 9:00 – 17:00. Síðasti móttökudagur verkefnisins er laugardagurinn 7. nóvember kl. 11:00 – 16:00. Þann dag fer fram sérstök kynning á verkefninu, léttar veitingar verða í boði í kaffiteríunni og allir eru hjartanlega velkomnir. Þeim sem búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins er bent á að skókassar þurfa að hafa borist til Reykjavíkur fyrir 7. nóvember. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.skokassar.net eða í síma 588 8899.


Hvernig á að ganga frá skókassanum?

  1. Finnið tóman skókassa og pakkið honum inn í jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn þannig að hægt sé að opna kassann. Hægt er að nálgast skókassa í skóbúðum og mælt er með að fólk tryggi sér kassa í tæka tíð.
  2. Ákveðið hvort gjöfin sé ætluð fyrir strák eða stelpu og fyrir hvaða aldur: (2-4), (5-9), (10-14) eða (15-18). Á baksíðu þessa bæklings finnið þið tilbúinn merkimiða. Klippið miðann út, merkið á hann aldursflokk viðtakanda og límið ofan á skókassann.
  3. Setjið 500-800 krónur í umslag og leggið efst í kassann. Peningurinn er fyrir kostnaði sem fylgir verkefninu.
  4. Lokið kassanum með því að setja teygju utan um hann.

Gjafir í skókassana

Í kassann skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum eftirtalinna flokka:

  • Leikföng, t.d. litla bíla, bolta, dúkku, bangsa eða jó-jó. Athugið að láta auka rafhlöður fylgja rafknúnum leikföngum.
  • Skóladót, t.d. penna, blýanta, yddara, strokleður, skrifbækur, liti, litabækur eða vasareikni.
  • Hreinlætisvörur. Óskað er eftir því að allir láti tannbursta og tannkrem í kassann sinn. Einnig má setja sápustykki, greiðu, þvottapoka eða hárskraut.
  • Sælgæti, t.d. sleikjó, brjóstsykur, pez, tyggjó eða karamellur.
  • Föt, t.d. húfu, vettlinga, sokka, trefil, bol eða peysu.

Hvað má ekki fara í skókassana?

  • Mikið notaðir eða illa farnir hlutir.
  • Matvara.
  • Stríðsdót, t.d. leikfangabyssur, leikfangahermenn eða hnífar.
  • Vökvar, t.d. sjampó, krem eða sápukúlur.
  • Lyf, t.d. vítamín, hálsbrjóstsykur eða smyrsl.
  • Brothættir hlutir, t.d. speglar eða postulínsdúkkur.
  • Spilastokkar. Þar sem spilastokkar eru tengdir fjárhættuspilum í Úkraínu, óskum við eftir að þeir séu ekki gefnir í skókassana.

Athugið!

Ef þú vilt getur þú sett mynd af þér ásamt nafni og heimilisfangi og/eða netfangi efst í skókassann. Það gefur viðtakanda skókassans möguleika á að setja sig í samband við þig. Þannig geta myndast vinatengsl sem varað geta lengi.

Með þínu framlagi tryggir þú að barn, sem annars fengi ekki jólagjöf, fái gjöf sem færir því gleði, von og hinn raunverulega boðskap jólanna, kærleika Jesú Krists.

Comments are closed.