HÖFN Í HORNAFIRÐI OG SA-LAND:
Tekið verður á móti skókössum í hvítasunnukirkjunni Lifandi vatn, Hafnarbraut 59, miðvikudaginn 2. nóvember frá kl. 16-18. Þar verður jafnframt hægt að fá aðstoð við að pakka inn kössum í jólapappír.
Tengiliður er Helga (866-5734).
Síðasti skiladagur á Höfn í Hornafirði er á morgun, miðvikudaginn 2. nóvember
Hægt er að skila kössum alla virka daga í Reykjavík
Tekið er á móti skókössum í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28 alla virka daga frá kl. 9:00 – 17:00. Einnig er hægt að hringja á skrifstofu KFUM á sama tíma í síma 588-8899 til að fá nánari upplýsingar um verkefnið. Einnig erum við með 11 tengiliði fyrir verkefnið úti á landi (sjá undir: Móttökustaðir). Svo er alltaf hægt að skila skókassa til næsta útibús Flytjanda sem flytur kassann endurgjaldslaust til okkar í Reykjavík (KFUM&KFUK, Holtavegi 28, 104 Rvk).
Jól í skókassa er á Fésbókinni (Facebook)
Við erum komin með nýja síðu (page) á Facebook (sú gamla hvarf!). Endilega klikkið á „líka við“ á síðunni okkar. Leitarorðið er „Jól í skókassa“ og bein slóð er: www.facebook.com/skokassar
Síðan hentar vel fyrir gagnvirk samskipti.
Býrðu ekki á höfuðborgarsvæðinu? Þá minnum við á http://skokassar.net/mottokustaðir/ þar sem er að finna allar helstu upplýsingar um móttökustaði okkar úti á landi og lokaskiladaga þar. Ef þú býrð ekki nálægt neinum af þessum stöðum er alltaf hægt að skila skókassa til næsta útibús Flytjanda sem flytur kassann endurgjaldslaust til okkar í Reykjavík (KFUM&KFUK, Holtavegi 28, 104 Rvk).
Síðasti skiladagur í Stykkishólmi er á morgun, þriðjudaginn 1. nóvember
STYKKISHÓLMUR:
Tekið verður á móti skókössum þriðjudaginn 1. nóvember frá kl. 16-19 í Stykkishólmskirkju.
Tengiliður er Ásdís Herrý Ásmundsdóttir (438-1387).
Síðasti skiladagur á Skagaströnd á morgun, laugardaginn 29. október
Fyrsti lokaskiladagur Jól í skókassa úti á landsbyggðinni er á morgun á Skagaströnd.
SKAGASTRÖND OG NÁGRENNI:
Tekið verður á móti skókössum í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 29. október frá kl. 13-17.
Tengiliður er Aðalheiður M. Steindórsdóttir (865-3689).
Jól í skókassa: Kassar berast jafnt og þétt Lokaskiladagur 12. nóvember í Reykjavík
Jól í skókassa-verkefnið nær nú brátt hámarki, en söfnun skókassa er í fullum gangi í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28, Reykjavík. Verkefnið er nú framkvæmt áttunda árið í röð og gengur sem fyrr út á að fá fólk á öllum aldri til að útbúa og gefa skókassa í jólapappír með jólaglaðningi, fyrir fátæk og munaðarlaus börn í Úkraínu.
Margir fallegir skókassar með góðum gjöfum hafa borist undanfarið og er einkar ánægjulegt að sjá að gefendur eru á öllum aldri. Margir grunnskólar á landinu taka þátt í verkefninu, og sumir gefenda hafa haft orð á því að þeir hafi verið að safna dóti til að gefa til verkefnisins allt síðasta ár.
Lokaskiladagur Jól í skókassa er laugardagurinn 12.nóvember í Reykjavík, og laugardagurinn 5.nóvember á landsbyggðinni. Upplýsingar um móttökustaði á landsbyggðinni er að finna hér á heimasíðunni (“Móttökustaðir“).
Undanfarin ár hafa skókassar sem borist hafa til Jól í skókassa glatt ótalmörg bágstödd börn í Úkraínu.
Leiðbeiningar um það hvernig útbúa skal skókassa er einnig að finna hér á heimasíðunni (“Upplýsingar“).
Margt smátt gerir eitt stórt!
Liðsauki óskast
Biblíuleshópurinn Bleikjan sem staðið hefur fyrir verkefninu Jól í skókassa undanfarin ár óskar nú eftir liðsauka við undirbúning og utanumhald verkefnisins. Áhugasamir hafi samband við Björgu Jónsdóttur (bjorjon(hjá)gmail.com) fyrir 1. október n.k.
Ferð til Úkraínu sumarið 2012
KFUM og KFUK á Íslandi hefur um árabil verið í vináttusamstarfi við KFUM í Úkraínu. Meðal annars hefur samstarfið falið í sér verkefnið Jól í skókassa, sem verður haldið með óbreyttum hætti í áttunda sinn nú í haust.
Í tilefni af þessu samstarfi hefur verið ákveðið að bjóða upp á 10 daga kynningarferð til Úkraínu í ágúst 2012. Ievgenii Zhabkovskyi, formaður KFUM í Úkraínu mun skipuleggja ferðina í samstarfi við KFUM og KFUK á Íslandi, og fylgja þátttakendum eftir meðan á ferðinni stendur.
Til stendur að hópurinn heimsæki heimili fyrir munaðarlaus börn og sjúkrahús, þangað sem skókassar frá Íslandi hafa borist fyrir tilstilli verkefnisins Jól í skókassa. Einnig er ráðgert að þátttakendur fái tækifæri til að kynnast úkraínskri menningu.
Kynningarfundur vegna þessarar ferðar verður haldinn í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28 í Reykjavík mánudaginn 19. september kl.17:30.
Allir eru hjartanlega velkomnir!
Verkefnið á Facebook
Nú hefur Jól í skókassa sett upp síðu (e. page) á Facebook, en hópurinn (e. group) sem var utan um verkefnið áður hefur verið fjarlægður. Það er því um að gera fyrir alla að kíkja á Facebook og “líka” við nýju síðuna. Vefslóðin er: www.facebook.com/skokassar
Skókassasöfnun í áttunda sinn
Nú er undirbúningur fyrir Jól í skókassaverkefnið þetta haustið að fara í fullan gang. Lokaskiladagur verður 12. nóvember milli kl 11-16 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík, en nánari upplýsingar um aðra skilastaði kemur síðar.
Kynningarbæklingur fyrir verkefnið er væntanlegur úr prentun eftir þessa helgi. En hægt verður að nálgast eintök í KFUM og KFUK húsinu. Einnig er hægt að sækja bæklinginn á pdf formi hér - http://skokassar.net/skokassar-low.pdf.













