Jól í skókassa

Að sjá börn gleðjast
Það var vel tekið á móti okkur þegar við lentum á flugvellinum í Kiev, höfuðborg Úkraínu.  Okkur var ekið heim til nýgiftra hjóna, sjálfboðaliða í KFUM,  sem búa við sömu aðstæður og flestir íbúar borgarinnar stóru. Húsið var gömul “rússablokk” þar sem myrkrið umlukti nágrennið enda ekki verið að eyða aurum í götulýsingu. Eins voru íbúðirnar takmarkað lýstar af sömu ástæðu.

Þegar gengið var inn í stigaganginn var eins og maður kæmi inn í hús sem var og er fokhelt eftir áratugi. Ekkert ljós var í stigaganginum og við fikruðum okkur upp þrepin þar til við komum á fjórðu eða fimmtu hæð. Auðvitað var engin lyfta. Þegar inn í íbúðina var komið mætti okkur langur gangur með herbergi á báðar hliðar. Í íbúðinni búa sex fjölskyldur. Hver og ein hefur sitt herbergi. Það er sameiginlegt eldhús og snyrting.

Við gengum inn ganginn að innstu dyrum til hægri.  Þar beið okkar unga húsmóðirin og bauð okkur inn í vistarverur þeirra hjóna, um það bil 10 fermetra herbergi, með vaski, fataskáp, sófa, sem er jafnframt rúm þeirra hjóna yfir nóttina og samanbrjótanlegu borði sem stóð uppábúið og dekkað kræsingum. Okkur var boðið upp á rauða borsh súpu, þjóðarrétt Úkraínufólks. Þetta er gómsæt súpa sem inniheldur smá kjöt, kartöflur, rauðrófur og annað grænmeti. Allt var mjög snyrtilegt og vel fram sett. Maturinn bragðaðist mjög vel. Saman áttum við góða stund þar sem við spjöllum um starfið í KFUM, jólapakkana og fleira. Húsakynnin voru dæmigerð fyrir ungt fólk sem er að hefja búskap, bjartsýn með hugann fullan af draumum um betri tíð og bjarta framtíð.

Vagninn okkar var númer 80, klefi númer 40 og við áttum koju númer 5 og 6, í lestinni á leið til Znamenka. Klukkan var 23:12 þegar við lögðum af stað frá höfuðborginni áleiðis til Znamenka, sem er næsta lestarstöð við ákvörðunarstaðinn Subotcy. Ferðin með lestinni tók 4 tíma og við höfðum verið á ferðinni 18 klst þegar hér var komið sögu. Við flugum fyrst til London og þaðan til Kiev. Þetta var orðinn langur dagur en við vorum ekkert sérlega spennt fyrir að leggja okkur í lestinni. Í klefanum með okkur var kona sem lagðist fljótlega til svefns en við lásum og töluðum saman í lágum hljóðum.  Um klukkan tvö kom maður inn í klefann og bættist í hópinn. Hann lagðist í efri koju og sofnaði fljótt.

Á brautarpallinum beið faðir Yevheniy með stórt bros. Hann tók vel á móti okkur og bauð okkur hjartanlega velkomin. Veðrið var stillt og hitastigið um frostmark. Við héldum af stað með leigubíl í prestsbústaðinn í Subotcy. Þar fengum við næturhvíld sem var kærkomin. Dagur eitt í þessari ferð var liðinn.

Við vöknuðum að morgni annars dags og hún Anna ráðskona prestsins freistaði okkar með morgunverðarhlaðborði. Morgunverðurinn hennar Önnu var í raun eins og gott kvöldverðarhlaðborð. Hún var löngu vöknuð og búin að standa í eldhúsinu við að útbúa hina ýmsu rétti fyrir gestina. Á borðum var heit kartöflumús með smá kjöti, nýbakaðar pönnukökur með berjasultu úr garðinum hennar og fleira og fleira. Hér ræktar fólk helstu lífsnauðsynjar og hver planta er nýtt og hver landskiki.

Að morgunverði loknum var farið í að undirbúa dreifinguna, kassar sóttir og teknir til.  Síðdegis vorum við í Nadya, sem er móttökuheimili fyrir munaðarlaus börn og börn sem búa við afar erfiðar heimilisaðstæður. Sum eru tekin beint af götunni. Þau eru vistuð þar í allt að þrjá mánuði áður en þeim er búið heimili annars staðar. Hingað höfum við komið nokkrum sinnum áður. Þegar ég kom hingað fyrst fyrir um það bil 5 árum hafði verið mikið frost, um 30°C. Miðstöðin í húsinu var ónýt og kuldinn inni var síst minni en úti. Börnin voru klædd í öll þau fáu föt sem þau áttu og látin vera í rúminu allan daginn undir sæng til að skapa svolítinn líkamshita. Mörg þeirra veiktust, fengu lungnabólgu. Veggirnir voru svo rakir að málningin datt af, gólfið svo kalt og rakt að gólfdúkurinn lá í henglum ofan á. Húsnæðið var í vægast sagt döpru ásigkomulagi.

Síðan þá hefur ýmislegt jákvætt gerst. Búið er að endurnýja miðstöðina, skipt var um þak á húsinu í sumar, veggir málaðir og húsnæðið hefur verið endurnýjað að hluta. Við höfum reynt að taka svolítinn þátt í því, m.a. keypt gólfefni, rúmdýnur, inniskó og eitt og annað smálegt. Forstöðumaðurinn er áhugasamur og hugsar vel um allt. Hann hefur verið hér í um 3 ár. Það kom glampi í augu hans þegar við ræðum um uppbyggingu heimilisins. Hér líður þessum börnum vel miðað við aðstæður. Í þetta sinn voru börnin óvenjufá eða 22.   Venjulega eru hér um 80 börn. Fyrr í mánuðinum voru 16 börn flutt annað til framtíðardvalar.

Alla er 16 ára. Þegar við hittum hana hafði hún verið sex daga á Nadya. Hún er upprunalega frá Moldavíu þar sem hún missti föður sinn ung. Móðir hennar tók sig upp eftir það og flutti sig til Kirovograd í Úkraínu. Þar lést móðir hennar fyrir nokkru.  Alla hafði húsnæði en það er svo lélegt og kalt að þar er ekki hægt að vera. Hún fór í skóla og lauk skyldunámi og eftir það lærði hún matseld. En hún hefur ekki vinnu og aðstæður hennar eru afar slæmar. Því er hún hér, í einangrun því hver einstaklingur þarf að gangast undir læknisskoðun og próf í um það bil 10 daga áður en hún fær að samlagast hópnum. Hver framtíð hennar verður veit enginn.  En hún var glöð og þakklát eins og hin börnin að fá jólagjöf frá Íslandi.  Ég held hún hafi ekki fengið marga jólapakka né aðrar gjafir á sinni stuttu ævi.  Ævi sem hefur reynt fleira og þyngra en margur gerir á langri ævi.

Dagur tvö var að kvöldi komin og við höldum heim til að ræða frekar verkefni morgundagsins.

Það eru fjölmörg þroskaheft og fötluð börn í Úkraínu og þriðja daginn, 29. desember heimsóttum við heimili fyrir þroskaheft börn í bæ sem heitir Novomirgorod.  Hann er í um 100 km fjarlægð frá Kirovograd. Þó fjarlægðin sé ekki mikil tekur það okkur um tvær klukkustundir að komast þangað. Bæði var rútan sem flutti okkur a.m.k. fjörtíu ára og vegurinn ekki góður. Hann var malbikaður, já, en kræklóttur og holóttur.

Við settum í rútuna 150 pakka og fengum hjálp frá sjálfboðaliðum sem ætluðu að slást í för. Við skröltum eftir veginum og sums staðar voru hálkublettir vegna snjóa. Eins gott var að við þurftum ekki að snögghemla því hjólbarðarnir voru nú ekki traustvekjandi á íslenskan mælikvarða. En með varðveislu Guðs komumst við á áfangastað þar sem vel var tekið á móti okkur. Nokkrir unglingar komu út og hjálpuðu okkur við að bera inn gjafirnar. Það var tilhlökkun og eftirvænting í augum þeirra.

Okkur var boðið á jólaskemmtun eldri barnanna þar sem þau sungu og dönsuðu eins og slíkum börnum er einum lagið. Þau voru og ánægð þegar sýningunni lauk og þá var komið að því að deila út gjöfunum.  Þau ljómuðu af gleði þar sem þau skoðuðu pakkann sinn, gægðust undir lokið og kíktu á innihaldið.  Þau tóku upp einn og einn hlut, skoðuðu og sýndu hvert öðru með bros á vör og glampa í augum.

Á þessu heimili dvelja 151 barn á aldrinum tveggja til þrjátíu og átta ára.  Þau eiga mörg foreldra sem ýmist vilja ekki af þeim vita, eru ekki hæf til að sinna þeim eða of fátæk til að eiga möguleika á að hafa þau heima. Sum eru munaðarlaus. Þarna fá þau gott atlæti og þjálfun og menntun eins og kostur er. Okkur var boðið upp á hressingu, borsh súpu og meðlæti inni á skrifstofu forstöðukonunnar. Við heimsóttum þetta heimili í fyrsta sinn í fyrra og okkur sýnist aðbúnaður þarna vera ágætur miðað við aðstæður.

Á leiðinni til baka stoppuðum við í stórmarkaði til að kaupa hreinlætisvörur, þvottaefni, ljósaperur og salernispappír. Birgðir til eins árs fyrir barnageðdeild sjúkrahúss í Novy. Þar höfum við heimsótt börnin á hverju ári frá upphafi verkefnisins. Þangað keyptum við tvær þvottavélar en áður var allur þvottur handþveginn. Eins keyptum við líka vatnshreinsitæki svo börnin fengju hreint vatn að drekka. Við höfum séð þeim fyrir þessum birgðum undanfarin ár en framlög ríkisins duga ekki fyrir helstu nauðsynjum. Því höfum við reynt að rétta hjálparhönd. Í þetta sinn voru börnin óvenjufá. Nokkur höfðu dáið á liðnu ári m.a. úr svínaflensu. Þau sem voru þarna fengu smá glaðning en mest var gleði starfsfólksins og þakklæti fyrir aðstoðina sem kemur frá Íslandi.  Þær minnast þeirra daga áður en þær fengu þvottavélar og hreinsiefni. Ég man líka þegar ég kom þarna áður en það gerðist. Orð geta vart líst þeirri aðkomu. Veik börn sem gerðu þarfir sínar í rúmið, víða ekkert ljós, snyrtingar óþrifnar og lyktin langt út á götu. Nú er þetta allt annað, hreint og snyrtilegt. Þau nánast bóna þvottavélarnar, starfsfólkið, svo ánægð er það með þetta allt saman.

Það er í raun kraftaverk að rútan okkar skyldi enn á ný vera mætt á réttum tíma að morgni 30. desember. Við nutum aðstoðar sjálfboðaliða enn á ný við að setja rúmlega 150 kassa í rútuna. Að því loknu var haldið af stað. Nú á nýjan stað sem við höfðum ekki heimsótt áður.  Þetta er heimili sem er í senn skóli, munaðarleysingjaheimili og heimavist, við bæ sem heitir Dobrovelichkovka. Bærinn er í um 130 km fjarlægð frá Kirovograd. Ekki var nú rútan okkar traustvekjandi því vélin drap á sér í hvert sinn sem við þurftum að hægja á okkur eða stoppa. Á köflum hélt ég hún myndi ekki fara í gang aftur en það hafðist allt að lokum. Eftir vel á þriðja tíma komum við á áfangastað. Þarna eru gríðar mikil húsakynni, nokkrar stórar byggingar en hluti þeirra nánast í eyði og annað í misjöfnu ástandi. Allt var byggt á tímum kommúnismans, eins og sjá má á byggingarforminu.

Þegar við komum í anddyri matskálans voru slíkir dropar í loftinu að við héldum fyrst að þetta væri eins konar skrautsteypa. Þegar betur var að gáð reyndust þetta vera vatnsdropar vegna gífurlegs raka í loftinu. Skóla- og svefnhúsið var í þokkalegu standi á úkraínskan mælikvarða. Börnin sofa 10-15 saman í herbergi, stúlkur á einni hæð og strákar á annarri.  Skólinn er ágætlega tækjum búin m.a. tölvuherbergi með internet tengingu. Skólinn er fyrir börn á aldrinum 6-18 ára.

Enn á ný var okkur boðið á jólaskemmtun skólans. Hluti barnanna var farinn heim til sín, þau sem eru þarna í heimavist. Eftir á staðnum voru þau sem eru munaðarlaus. Þau sýndu okkur flotta dansa sem þau höfðu sjálf samið og æft. Fluttu okkur ljóð og sungu fyrir okkur. Að því loknu afhentum við þeim pakka sem framkölluðu sjaldséð blik í augum og bros á vör.  Það var áhrifarík stund þegar þau tóku við gjöfinni sinni, opnuðu hana og skoðuðu innihaldið, mátuðu, smökkuðu og sýndu hvert öðru. Þennan dag náðum við enn á ný að sjá börn gleðjast sem svo sannarlega þurftu á því að halda. Það eru sönn forréttindi að fá með þessum hætti að miðla kærleika Krists sem elskar okkur hvert og eitt fullkominni elsku, sama hver staða okkar er. Börnin voru hissa á að fólk alla leið frá Íslandi skyldi láta sér þykja vænt um þau, gera sér ferð til að heimsækja þau og gefa þeim gjöf. Fyrir þeim var þetta óskiljanlegur kærleikur.

Það var með þakklæti í hjarta sem við yfirgáfum þennan stað og skröltum til baka í rútunni  sem vissulega hélt okkur spenntum hvort við hefðum heimferðina af eða ekki. Bænirnar voru heitar fyrir börnunum og ekki síður fyrir rútunni og bílstjóranum, að við næðum heim, heilu og höldnu.

Kærar þakkir fylgja okkur til allra þeirra sem tóku þátt í verkefninu “Jól í Skókassa”.  Ég get fullvissað ykkur að hver einasti pakki færir gleði og kærleika inn í líf þeirra einstaklinga sem fá að njóta.

Guð blessi ykkur öll,

Björgvin Þórðarson

Myndir frá dreifingu jólapakkanna má sjá hér.

Myndir frá dreifingu jólapakka
Hér eru myndir frá dreifingu jólapakkanna desember 2009 og í janúar 2010. Ferðasagan er væntanleg á næstu vikum.

<object width="500" height="375"><param name="flashvars" value="offsite=true&lang=en-us&page_show_url=%2Fphotos%2Fskokassar%2Fsets%2F72157623335098647%2Fshow%2F&page_show_back_url=%2Fphotos%2Fskokassar%2Fsets%2F72157623335098647%2F&set_id=72157623335098647&jump_to="></param><param name="movie" value="http://www.flickr.com/apps/slideshow/show.swf?v=71649"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><embed type="application/x-shockwave-flash" src="http://www.flickr.com/apps/slideshow/show.swf?v=71649" allowFullScreen="true" flashvars="offsite=true&lang=en-us&page_show_url=%2Fphotos%2Fskokassar%2Fsets%2F72157623335098647%2Fshow%2F&page_show_back_url=%2Fphotos%2Fskokassar%2Fsets%2F72157623335098647%2F&set_id=72157623335098647&jump_to=" width="500" height="375"></embed></object>

Lokatala 2009 og þakkir
Lokatala skókassa í ár var 3.603 og eru allir himinlifandi með þessa niðurstöðu.

Samtals hafa safnast yfir 21.000 skókassar á fyrstu 6 árum verkefnisins, sem er alveg ótrúlegt.

Okkur langar að nota þetta tækifæri og þakka nokkrum fyrirtækjum sem studdu dyggilega við bakið á okkur í ár… en sum þessara fyrirtækja hafa raunar stutt okkur í mörg ár.

Fyrst og fremst ber að nefna Eimskip sem hefur verið ótrúlega gjafmilt við okkur og í raun gert verkefninu kleift að standa undir sér með frábærum prísum á flutningum, bæði innanlands og utan. Flytjandi hefur keyrt kassa frá landsbyggðinni til Reykjavíkur endurgjaldslaust og hjálpar það okkur mjög mikið.

Oddi hefur séð um að prenta fyrir okkur kynningarbækling, þakkarmiða, plaköt og fleira og veitt okkur töluverðan afslátt og þannig stutt dyggilega við bakið á okkur.

Ölgerðin og Vífilfell hafa öll árin gefið okkur ógrynni af gosi til þess bjóða fólki upp á sem kemur með kassa niður á Holtaveg á lokaskiladeginum. Ölgerðin hefur einnig gefið okkur heilan helling af sælgæti og þessi fyrirtæki taka alltaf vel í allar óskir um stuðning.

Subway gaf öllum sjálfboðaliðunum sem unnu við að taka á móti kössum, pakka þeim og koma í gám á lokaskildeginum, ókeypis veislubakka, svo mikið að ekki náðist einu sinni að klára allar kræsingarnar.

Bónus gaf okkur um þúsund tannkremstúbur og súkkulaði í kílóavís fyrir börnin í Úkraínu. Eitt símtal í Jóhannes í Bónus og hann var ekki lengi að græja þetta.

Hagabakarí gaf okkur síðan ógrynni af snúðum, vínarbrauðum, ostaslaufum og öðrum bakkelsi til þess að bjóða fólki upp á sem mætti með kassa á lokaskiladegi.

Öll þessi fyrirtæki fá endalausar þakkir frá okkur sem stöndum að verkefninu. Takk fyrir okkur.

Síðast en ekki síst langar mig að þakka ykkur sem bjugguð til skókassa kærlega fyrir. Án ykkar væru engin “Jól í skókassa”. Takk kærlega fyrir allar hlýjar kveðjur, jákvæð skrif um verkefnið og gjafmildi ykkar.

Verkefnið heldur áfram á næsta ári og vonandi mörg ár í viðbót. Við vonum að sem flestir haldi áfram að taka þátt.

Takk fyrir okkur.

Kv. Bleikjan

Góður dagur (af vef RÚV)
Margir lögðu leið sína í húsakynni KFUM og K í Reykjavík í dag með jólapakka í söfnunina jól í skókassa. Söfnuninni lauk í dag en alls söfnuðust á fjórða þúsund jólapakkar. Þeir verða sendir í næstu viku til Úkraínu þar sem þeim verður dreift til munaðarlausra barna og [barna] einstæðra mæðra.

http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item310659/

5 dagar til stefnu
Halló allir.

Mig langaði bara að minna ykkur á að lokaskiladagur verkefnisins í ár er eftir aðeins 5 daga.

Lokaskiladagar skókassa á landsbyggðinni eru listaðir í færslunni hér fyrir neðan en þeim sem misstu af lokaskiladeginum í sínu bæjarfélagi er bent á að enn er hægt að skila skókössum til næsta útibús Flytjanda sem flytur skókassana endurgjaldslaust til okkar í Reykjavík.

Hér fyrir neðan er stutt kynningarmyndband um verkefnið sem var búið til í fyrra. Athugið að lokaskiladagur í ár er 7. nóvember en ekki 8. nóvember eins og segir í myndbandinu.

<object id="mbox_player_0096d7b9141be6c58f" classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="416" height="312" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowScriptAccess" value="always" /><param name="allowFullscreen" value="true" /><param name="src" value="http://www.motionbox.com/external/hd_player/type%253Dsd%252Cvideo_uid%253D0096d7b9141be6c58f" /><param name="name" value="mbox_player_0096d7b9141be6c58f" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed id="mbox_player_0096d7b9141be6c58f" type="application/x-shockwave-flash" width="416" height="312" src="http://www.motionbox.com/external/hd_player/type%253Dsd%252Cvideo_uid%253D0096d7b9141be6c58f" name="mbox_player_0096d7b9141be6c58f" allowfullscreen="true" allowscriptaccess="always"></embed></object>

Jól í skókassa – Kynningarmyndband 2008

Jól í skókassa 2009 – Landsbyggðin
Hér fyrir neðan eru upplýsingar um lokaskiladaga og tengilliði verkefnisins um land allt.

Reykjavík og nágrenni:

Lokaskiladagur verkefnisins á höfuðborgarsvæðinu verður laugardaginn 7. nóvember 2009 í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28, 104 Reykjavík (gegnt Langholtsskóla), frá kl. 11:00 til kl. 16:00.

Akranes:

Hægt verður að skila skókössum í húsi KFUM&KFUK, Garðabraut 1, á eftirfarandi dögum:

Mánudaginn 2. nóvember frá kl. 17-19.

Þriðjudaginn 3. nóvember frá kl. 17-19.

Miðvikudaginn 4. nóvember frá kl. 17-19.

Fimmtudaginn 5. nóvember frá kl. 18-21.

Föstudaginn 6. nóvember frá kl. 18-21.

Tengiliður er Irena Rut Jónsdóttir (868-1383).

Reyholtssveit í Borgarfirði:

Blómaskálinn á Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal tekur á móti skókössum (435-1162).

Tengiliður er Embla Guðmundsdóttir (691-1182/435-1182).

Grundarfjörður:

Lokaskiladagur verður laugardaginn 31. október í safnaðarheimili Grundafjarðarkirkju frá kl. 13-17.

Tengiliðir eru Salbjörg Sigríður Nóadóttir (896-6650) og Hugrún Birgisdóttir.

Stykkishólmur:

Tekið verður á móti skókössum sunnudaginn 1. nóvember frá kl. 17-19 í Stykkishólmskirkju.

Ísafjörður og Vestfirðir:

Tekið verður á móti skókössum í Ísafjarðarkirkju. Hún er að jafnaði opin alla virka daga milli kl. 8:30 og 17. Síðasti skiladagur er mánudagurinn 2. nóvember.

Tengiliður er Lísbet Harðardóttir (697-4833).

Akureyri og Norðurland:

Tekið verður á móti skókössum á Glerártorgi á Akureyri laugardaginn 31. október frá kl. 11-15.

Tengiliður er Jóhann Þorsteinsson (699-4115) starfsmaður KFUM&KFUK á Norðurlandi. Hægt er að vera í sambandi við hann til að skila skókössum á öðrum tímum.

Egilsstaðir og Austurland:

Tekið verður á móti skókössum  í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4, laugardaginn 31. október frá 13-15.

Tengiliðir eru Hlín Stefánsdóttir (849-9537) og Þorgeir Arason (847-9289/895-3606).

Vestmannaeyjar:

Tekið verður á móti skókössum í Landakirkju. Hún er að jafnaði opin virka daga milli kl. 9 og 15. Síðasti skiladagur er þriðjudagurinn 3. nóvember.

Tengiliður er Gísli Stefánsson (849-5754).

Selfoss: Tekið verður á móti skókössum í Selfosskirkju. Hún er að jafnaði opin alla virka daga milli kl. 9:00 og 13. Síðasti skiladagur er fimmtudagurinn 5. nóvember. Tengiliður er Ninna Sif Svavarsdóttir (849-1321).

Reykjanesbær:

Hægt er að koma skókössum til félagshúss KFUM&KFUK í Keflavík þegar það er opið.

Tengiliður er Brynja Eiríksdóttir (845-4531/421-5678).

Veggspjald
Aðstandendur Jól í skókassa hafa látið útbúa veggspjald sem hentugt er að nota í kynningarskini.

Hægt er að sækja eintak á vefinn með því að smella hér. Á veggspjaldinu er rými fyrir skóla, kirkjur, æskulýðsfélög, leikskóla, saumaklúbba, veiðifélaga, samfélagshópa eða foreldramorgna til að skrifa nánari upplýsingar um framkvæmd verkefnisins í sínum nærhóp.

Jól í skókassa 2009 fer af stað
Halló allir.

Þá er skókassaverkefnið okkar hafið að nýju. Undirbúningur er farinn af stað og nýr bæklingur verður vætanlega tilbúinn um mánaðarmótin. Hægt verður að nálgast bæklinginn hér á síðunni (á pdf. formi) eða á skrifstofum KFUM og KFUK á Holtavegi 28 auk þess sem honum verður dreift víðs vegar um bæinn.

Lokaskiladagur skókassa í ár er 7. nóvember og munum við, líkt og síðastliðin ár, taka á móti skókössum í höfuðstöðvum KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Einnig er hægt að skila skókössum fyrir þann tíma á skrifstofur KFUM og KFUK á sama stað.

Við hvetjum alla til að taka þátt í verkefninu í ár og jafnframt minna vini og vandamenn á það.

Að búa til skókassa og gefa munaðarlausu barni jólagjöf er frábær leið til að hefja jólaundirbúninginn og minna okkur á hinn raunverulega boðskap jólanna.

Ferðasaga – Dreifing skókassa í Úkraínu í janúar 2009
Þann 1. janúar héldum við til Úkraínu. Að þessu sinni millilentum við í Kaupmannahöfn og gistum þar í eina nótt í KFUM og KFUM húsinu. Eftir góða næturhvíld lögðum við snemma af stað út á flugvöll. Þaðan lá leiðin beint til Kiev. Á flugvellinum tók dóttir Evheniys, dóttir prestsins sem sér um verkefnið í Úkraínu, á móti okkur. Við skoðuðum okkur um í Kiev og héldum til Kirovohrad seinna um daginn. Eftir þriggja tíma lestarferð komumst við loks á leiðarenda og þar tók Evheniy á móti okkur. Þaðan héldum við sem leið lá til prestsetursins í Subatsee en þar gistum við næstu daga á meðan dreifingu skókassa fór fram. Það voru því þreyttir ferðalangar sem lögðust til hvíldar þetta kvöld, en fullir eftirvæntingar að takast á við verkefni komandi daga.

Næsti dagur var tekinn snemma. Það var þó nokkur kuldi úti eða um -12° og voru það mikil viðbrigði miðað við milda veðurfarið heima á Íslandi. Við fórum og sóttum pakkana sem voru í geymslu skammt frá. Þaðan fórum við á stofnun þar sem munaðarlaus börn eru, en einnig börn foreldra sem ekki geta sinnt þeim sem skyldi.

Eftirvæntingin var mikil í augum barnanna og voru þau öll tilbúin að hjálpa okkur að koma pökkunum í hús. Búið var að skipuleggja söng og ljóðalestur fyrir okkur og var greinilegt að mikið hafði verið lagt í æfingar. Börn allt niður í 3-4 ára fóru með ljóð og tókst mjög vel til. Að því loknu var komið að því sem allir biðu eftir, útdeilingu pakkanna. Með sterkri stjórn forstöðukonunnar á heimilinu röðuð börnin sér upp og voru tilbúin að taka á móti gjöfunum. Gleðin í andlitum barnanna þegar þau fá pakkann í hendur er ólýsanleg og hvað þá ánægjusvipurinn þegar þau opna þá. Tannbursti og tannkrem er algjör fjársjóður og er eitt atvik mjög minnisstætt. Lítill strákur tók upp leikfangakarl og tannkrem á sama tíma. Það vildi svo til að á tannkreminu var mynd af Spiderman og það leið því ekki langur tími þangað til hann var farinn að láta tannkremið og leikfangakarlinn leika sér saman. Það má því segja að tannkremið hafi haft meira notagildi en bara að hreinsa tennur!

Næstu dagar fóru í dreifingu á hinum ýmsu stöðum, m.a. geðsjúkrahúsi og heimili fyrir andlega fötluð börn.

Á síðarnefnda heimilinu, sem er 2 tímum fyrir utan Kirovohrad, voru einstaklingar alveg upp í 35 ára. Við fengum að skoða aðstöðuna á heimilinu og voru nokkrir nemendur búnir að föndra handa okkur gjafir. Þegar við vorum búin að skoða okkur um vorum við leidd inn í sal þar sem okkur var sýnt leikrit. Leikritið var hátt í klukkutíma og var yndislegt að sjá einbeitinguna skína af hverju andliti. Það höfðu verið stífar æfingar fyrir komu okkar og voru allir búnir að læra textana sína mjög vel, en það hefur ekki verið auðvelt fyrir alla. Við dreifðum pökkum að leikriti loknu og voru allir mjög ánægðir með sitt. Áður en við komum á geðsjúkrahúsið keyptum við ýmis konar hreinlætisvörur, en þær vantar oft sárlega.

Við fengum að skoða okkur um og sáum m.a. þvottavélar sem verkefnið hafði gefið fyrir nokkrum árum. Þær litu út eins og nýjar þrátt fyrir mikla notkun en áður fyrr hafði allt verið þvegið í höndunum. Í fyrra stóðu einstaklingar af vefsíðunni www.er.is fyrir söfnum fyrir vatnshreinsibúnaði á heimilið. Áður var vatnið sem notast var mjög skítugt og þurfti að sjóða allt vatn fyrir notkun. Eftir söfnunina voru fest kaup á búnaðinum og nú streymir hreint vatn beint úr krananum. Þetta var mikil búbót fyrir heimilið og voru allir mjög þakklátir.

Við heimsóttum einnig heimili fyrir andlega og líkamlega fötluð börn. Það má segja að á því heimili sé unnið kraftaverkastarf. Mörg barnanna eru mjög fötluð og alveg rúmliggjandi.

Engin lyfta er í húsinu og þurfa starfsmenn að bera börnin milli hæða. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður var tekið vel á móti okkur með söng og dans. Nokkrir skelltu sér meira að segja á dansgólfið með börnunum og var það ótrúleg upplifun. Við vissum ekkert um hvað söngurinn var en það var greinilegt að einhverjar hreyfingar fylgdu með laginu. Við gerðum okkar besta að herma eftir til að falla í hópinn! Í næsta lagi gátum við þó sýnt danshæfileika okkar þar sem fugladansinn varð fyrir valinu en honum gleymir maður seint. Þrátt fyrir að það hafi verið erfitt að sjá fátæklegar aðstæður á þessu heimili, þá gerði gleðin í andlitum barnanna heimsóknina ógleymanlega og hverrar mínútu virði.

Við höfum heimsótt eitt ákveðið munaðarleysingjahæli árlega og er mjög gaman að sjá uppbyggingarstarfið sem þar á sér stað. Verið er að endurbyggja eina álmuna og er hún orðin hin glæsilegasta. Nýir dúkar eru á gólfum, veggir flísalagðir og ný klósett og sturtur komnar á staðinn.

Uppbygingarstarfið heldur áfram og er vonin að það sé hægt að taka álmuna aftur í gagnið fljótlega. Þessi álma er ætluð fyrir börn sem eru ný komin af götunni. Þar eru þau í nokkurs konar sóttkví í ákveðinn tíma þangað til þau geta farið til hinn barnanna. Þetta er gert þar sem þau geta verið með lús og hina ýmsu sjúkdóma.

Þegar við komum á staðinn var búið að raða upp stólum fyrir okkur og ljóðalestur fór fram. Þegar kom að einni stelpu sem var á unglingsaldri þá reyndist erfitt að fá hana upp á svið því hún var svo feimin. Þá bjargaði ein stelpa málunum (hún hefur verið um 4 ára) og hoppaði upp á svið og fór með annað ljóð eins og ekkert væri. Kátínan var mikil þegar við dreifðum pökkunum. Það sem maður tekur helst eftir er hvað öll börnin fara vel með hlutina.

Þau taka mjög hægt upp úr kassanum og skoða hvern hlut vel. Þegar því er lokið brjóta þau fötin saman og raða dótinu aftur ofan í kassann snyrtilega. Það er greinilegt að þau meta gjafirnar mikils og ætla sér að passa vel upp á þær.

Hópurinn sem sér um Jól í skókassa hefur haft það sem hliðarverkefni að gefa föngum gjafir (t.d. föt og snyrtivörur) í Kirovohrad. Við vorum svo lánsöm að fá að heimsækja nokkra fanga og afhenda þær. Þrátt fyrir stranga öryggisgæslu var létt yfir þeim föngum sem við fengum að hitta. Við hittum þá inn í kapellu sem þeir byggðu sjálfir innan fangelsismúranna. Allt sem er inni í kapellunni er gert af þeim, t.d. myndir á veggjum og altarið. Sem dæmi um hugvitssemi þeirra þá bjuggu þeir til kertastjaka úr áldósum. Hann var mjög fallegur og bar alls ekki með sér að vera búinn til úr endurnýtanlegu efni. Þegar útdeilingu gjafa var lokið fengu strákarnir í hópnum að skoða fangelsið en stelpurnar biðu í kapellunni. Nokkrir fangar komu og spjölluðu við okkur stelpurnar á bjagaðri ensku og voru þeir innilega þakklátir fyrir heimsóknina og gjafirnar.

Eftir vel heppnaðar heimsóknir héldum við heim á leið. Ferðin hófst með 5 klst. keyrslu í rútu þar sem miðstöðin virkaði ekki, en úti var -25°frost! Það voru því kaldir ferðalangar sem settust upp í flugvélina en gátu hlýjað sér við ótal góðar minningar síðustu daga. Hvort sem það var heimsókn á munaðarleysingjahæli, geðsjúkrahús eða fangelsi þá áttu þær allar eitt sameiginlegt: Þakklæti. Það er ótrúlegt hvað einn lítill skókassi getur gert stóra hluti.

Takk fyrir að taka þátt!

Endanlegur fjöldi skókassa í ár…
… var 4898

Þessi tala er alveg ótrúleg. Við sem höldum utan um verkefnið héldum að þetta væru aðeins færri kassar en í fyrra því einhverra hluta vegna minnti okkur að það hefðu safnast fjögur þúsund níu hundruð og eitthvað kassar þá. Í dag fór ég síðan að skoða gamlar færslur hérna á skókassar.net og fann þar færslu sem ég skrifaði í fyrra um endanlegan fjölda skókassa árið 2007. Og þá kom í ljós að fjöldi skókassa sem safnaðist í fyrra var 4897.

Það safnaðist sem sagt einum skókassa meira í ár heldur en í fyrra