Það var vel tekið á móti okkur þegar við lentum á flugvellinum í Kiev, höfuðborg Úkraínu. Okkur var ekið heim til nýgiftra hjóna, sjálfboðaliða í KFUM, sem búa við sömu aðstæður og flestir íbúar borgarinnar stóru. Húsið var gömul “rússablokk” þar sem myrkrið umlukti nágrennið enda ekki verið að eyða aurum í götulýsingu. [...]
Fréttasafn um ‘Úthlutun’
Myndir frá dreifingu jólapakka
Hér eru myndir frá dreifingu jólapakkanna desember 2009 og í janúar 2010. Ferðasagan er væntanleg á næstu vikum.
Ferðasaga – Dreifing skókassa í Úkraínu í janúar 2009
Þann 1. janúar héldum við til Úkraínu. Að þessu sinni millilentum við í Kaupmannahöfn og gistum þar í eina nótt í KFUM og KFUM húsinu. Eftir góða næturhvíld lögðum við snemma af stað út á flugvöll. Þaðan lá leiðin beint til Kiev. Á flugvellinum tók dóttir Evheniys, dóttir prestsins sem sér um verkefnið í Úkraínu, [...]
Jól í skókassa – Hliðarverkefni (Uppfært 28. okt.)
Nú styttist óðfluga í að verkefnið okkar fari á fullt swing 5. árið í röð. Bæklingurinn var að koma úr prentun og fer í dreifingu innan skamms. Þangað til er hægt að nálgast bæklinginn á pdf-formi með því að smella HÉR og er um að gera að fara að huga að gerð skókassans síns.
Mig langar samt að [...]
Myndband frá dreifingu skókassa og lokatalan í ár
Einn úr hópnum okkar tók sig til og klippti saman myndband frá drefingu íslenskra skókassa í Úkraínu í janúar 2007. Myndbandið er rétt undir 10 mínútum í spilun.
Endanlegur fjöldi skókassa í ár var 4897. Það bættust við rúmlega 60 kassar eftir lokaskiladag og þar sem gámurinn var ekki sóttur fyrr en á miðvikudegi gátum við [...]








