STYKKISHÓLMUR: Tekið verður á móti skókössum þriðjudaginn 1. nóvember frá kl. 16-19 í Stykkishólmskirkju. Tengiliður er Ásdís Herrý Ásmundsdóttir (438-1387).
Greinasafn um ‘Söfnun’
Síðasti skiladagur á Skagaströnd á morgun, laugardaginn 29. október
Fyrsti lokaskiladagur Jól í skókassa úti á landsbyggðinni er á morgun á Skagaströnd. SKAGASTRÖND OG NÁGRENNI: Tekið verður á móti skókössum í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 29. október frá kl. 13-17. Tengiliður er Aðalheiður M. Steindórsdóttir (865-3689).
Jól í skókassa: Kassar berast jafnt og þétt Lokaskiladagur 12. nóvember í Reykjavík
Jól í skókassa-verkefnið nær nú brátt hámarki, en söfnun skókassa er í fullum gangi í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28, Reykjavík. Verkefnið er nú framkvæmt áttunda árið í röð og gengur sem fyrr út á að fá fólk á öllum aldri til að útbúa og gefa skókassa í jólapappír með jólaglaðningi, fyrir fátæk [...]
Liðsauki óskast
Biblíuleshópurinn Bleikjan sem staðið hefur fyrir verkefninu Jól í skókassa undanfarin ár óskar nú eftir liðsauka við undirbúning og utanumhald verkefnisins. Áhugasamir hafi samband við Björgu Jónsdóttur (bjorjon(hjá)gmail.com) fyrir 1. október n.k.
Verkefnið á Facebook
Nú hefur Jól í skókassa sett upp síðu (e. page) á Facebook, en hópurinn (e. group) sem var utan um verkefnið áður hefur verið fjarlægður. Það er því um að gera fyrir alla að kíkja á Facebook og “líka” við nýju síðuna. Vefslóðin er: www.facebook.com/skokassar
Skókassasöfnun í áttunda sinn
Nú er undirbúningur fyrir Jól í skókassaverkefnið þetta haustið að fara í fullan gang. Lokaskiladagur verður 12. nóvember milli kl 11-16 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík, en nánari upplýsingar um aðra skilastaði kemur síðar. Kynningarbæklingur fyrir verkefnið er væntanlegur úr prentun eftir þessa helgi. En hægt verður að nálgast eintök í [...]
Páskaeggjasala
Hægt er að kaupa sívinsæl páskaegg frá Kólus til styrktar verkefninu Jól í skókassa en Biblíuleshópurinn Bleikjan heldur utan um verkefnið sem er unnið undir merkjum KFUM og KFUK. Um er að ræða gómsæt Kólus-páskaegg (900 g) sem eru stútfull af góðgæti. Hvert egg kostar kr. 3000.
Umfjöllun í ríkisútvarpinu um jólin
Á Rás 1 kl. 16:08 í dag, aðfangadag jóla, verður umfjöllun um Jól í skókassa verkefnið. Einn af okkur sem stöndum fyrir verkefninu, Björgvin Þórðarson, verður í viðtali og áhersla verður á jólahald í Úkraínu. Hvet ykkur til að hlusta. Endurflutt að kveldi annars dags jóla kl. 21. http://dagskra.ruv.is/nanar/11247/
Endanleg tala fyrir árið 2010
Nú er búið að fara yfir og flokka síðustu kassana sem að komu með Flytjanda í dag. Búið er að loka gámnum og í fyrramálið fer hann í sitt langa ferðalag til Úkraínu. Endanleg tala fyrir árið 2010 er 3.701 skókassi 3.703 skókassar, en tveir kassar bárust nokkrum mínútum áður en gámurinn fór af stað. Kærar [...]
Frábær dagur
Eftir viðburðaríkan mótttökudag í KFUM og KFUK húsinu við Holtaveg í dag, eru félagar í Bleikjunni og gott aðstoðarfólk rétt í þessu að setja 3.627 skókassa í gáminn sem fer til Úkraínu eftir helgi. Ekki er ósennilegt að nokkrir kassar bætist við á morgun og mánudagsmorgun áður en gámurinn fer í skip frá Eimskipafélagi Ísland [...]










