Haustið 2011 var verkefnið Jól í skókassa framkvæmt í áttunda sinn í samstarfi við KFUM og KFUK á Íslandi. Í byrjun janúar 2012 fóru þrír fulltrúar Jól í skókassa til Úkraínu til að aðstoða við dreifingu á skókössum sem söfnuðust á Íslandi haustið 2011. Dreifing kassanna var í umsjá aðaltengiliðar Jól í skókassa í Úkraínu, [...]
Greinasafn um ‘Söfnun’
Ferð til Úkraínu í janúar 2012: Ferðasaga
1. janúar – Sunnudagur Þegar tekið var að líða á fyrstu nótt ársins 2012, lögðum við sendinefnd Jól í skókassa 2012, Mjöll, Salvar og Soffía, af stað í langt ferðalag til mið-suðurhluta Úkraínu, nánar tiltekið til þorpsins Subottsi í nágrenni Kirovograd. Tilgangur ferðarinnar var að aðstoða við dreifingu jólagjafa í skókösssum sem söfnuðust á Íslandi fyrir jólin 2011, [...]
Lokatala fyrir árið 2011 er 4.175 kassar!!
Í kvöld mættum við nokkur á Holtaveginn í hús KFUM&KFUK til að fara yfir kassa sem að bárust of seint. Búið er að fylla gáminn, nánast troðfylla hann, loka honum og læsa. Á morgun fer hann í sitt langa ferðalag austur til Úkraínu. Lokatala fyrir árið 2011 er 4.175 kassar. Við erum mjög ánægð með [...]
Kærar þakkir!
Það myndaðist nánast öngþveiti við Holtaveginn í gær þegar fjöldi manna lagði leið sína í hús KFUM&KFUK í Laugardalnum til að skila skókössum með jólagjöfum fyrir börn í Úkraínu. Það var mikil stemning og dagurinn gekk mjög vel. Við sem stöndum að verkefninu unnum til kl. 1 í nótt og þá var búið að koma [...]
Frábær dagur að baki
Lokaskiladagur Jóla í skókassa gekk framar vonum og í lok dagsins var búið að ganga frá 3954 jólagjöfum til barna í Úkraínu. Það voru glaðir en þreyttir aðstandendur verkefnisins sem héldu heim seint í gærkvöldi með þakklæti í hjarta til allra þeirra sem tóku þátt í verkefninu í ár.
Síðasti skiladagur Jól í skókassa er í dag, laugardaginn 12. nóvember
Í dag, laugardaginn 12. nóvember, er síðasti skiladagur fyrir verkefnið þetta árið. Þá er hægt að koma í hús KFUM&KFUK við Holtaveg 28, milli kl. 11:00 og 16:00, og skila skókassa. Þar mun fara fram sérstök myndasýning sem sýnir feril verkefnisins, léttar veitingar verða í boði í kaffiteríunni og hægt verður að setjast niður og lesa ferðasögur frá [...]
Síðasti skiladagur Jól í skókassa er á morgun, laugardaginn 12. nóvember
Í dag, föstudag, hefur mikið verið að gerast í húsi KFUM&KFUK við Holtaveg. Hingað hafa streymt hópar frá grunn- og leikskólum með skókassa með jólagjöfum fyrir börnin og unglingana í Úkraínu. Meðal annars komu hópar frá leikskólunum Vinagarði og Regnboganum, og einnig fengum við heimsókn frá Mýrarhúsaskóla, Waldorfskólanum og Ölduselsskóla. Á morgun, laugardaginn 12. nóvember, [...]
Síðasti skiladagur á Suðurnesjum er í dag, föstudaginn 11. nóvember
Vikan hefur liðið hratt og kassarnir streyma inn í aðalstöðvar KFUM&KFUK á Íslandi á Holtaveginum. Bæði eru einstaklingar að koma með skókassa og svo erum við líka að fá sendingar frá tengiliðum okkar úti á landi. Við höfum verið að vinna öll kvöld þessarar viku við að ganga frá kössum. Nú er búið að fara [...]
Síðasti skiladagur á Akranesi er í dag, miðvikudaginn 9. nóvember
AKRANES: Hægt verður að skila skókössum í húsi KFUM&KFUK, Garðabraut 1. Síðasti skiladagur er miðvikudagurinn 9. nóvember frá kl. 18:00-19:30. Tengiliður er Irena Rut Jónsdóttir (868-1383).
Síðasti skiladagur á Selfossi er á morgun, miðvikudaginn 9. nóvember
SELFOSS: Tekið verður á móti skókössum í Selfosskirkju. Hún er að jafnaði opin alla virka daga milli kl. 9:00 og 13. Síðasti skiladagur er miðvikudagurinn 9. nóvember. Tengiliður er Ninna Sif Svavarsdóttir (849-1321)










