Endanlegur fjöldi skókassa í ár…

… var 4898

Þessi tala er alveg ótrúleg. Við sem höldum utan um verkefnið héldum að þetta væru aðeins færri kassar en í fyrra því einhverra hluta vegna minnti okkur að það hefðu safnast fjögur þúsund níu hundruð og eitthvað kassar þá. Í dag fór ég síðan að skoða gamlar færslur hérna á skókassar.net og fann þar færslu sem ég skrifaði í fyrra um endanlegan fjölda skókassa árið 2007. Og þá kom í ljós að fjöldi skókassa sem safnaðist í fyrra var 4897.

Það safnaðist sem sagt einum skókassa meira í ár heldur en í fyrra :)


Facebook ummæli

2 ummæli um “Endanlegur fjöldi skókassa í ár…”

  1. Kittý says:

    Vá. Get ekki annað sagt en að þetta er æðislegt. Hef tekið þátt í verkefninu síðastliðin 3 ár og var staðráðin í að gera það líka núna þrátt fyrir “ástandið”
    Er búin að bíða spennt eftir lokatölu og fékk gæsahúð þegar ég las þetta. Þetta er frábært!

    Gangi ykkur vel í dreifinguni.
    Með Kveðju Kittý!

  2. Emma Vilhjálmsdóttir says:

    Verkefnið er yndislegt og frábært hve margir tóku þátt, þó ég hefði viljað sjá enn fleiri skókassa. Ég veit um fullt af fólki sem hefði alveg getað tekið þátt en gerði það samt ekki. Við höfum tekið þátt frá því við uppgötvuðum þetta verkefni og finnst framtak ykkar fullkomið.

    Gangi ykkur vel úti og vonandi tekst okkur að gleðja þá sem minna mega sín. Dætur mínar og við, biðjum fyrir þeim sem eiga um sárt að binda.

    kær kveðja,
    Emma