Þá er farið að styttast í daginn stóra í ár. Loka skiladagur er laugardagurinn 3. nóvember n.k í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg. Þann dag verður tekið á móti kössum frá klukkan 11:00 til 16:00. Jafnframt verður myndasýning frá síðustu úthlutun og boðið upp á kaffi, gos og smá meðlæti.
Annars er hægt að koma kössum til skila í hús KFUM og KFUK við Holtaveg. Þar er opið milli klukkan 9:00 og 17:00. Ef þið búið úti á landi …. hafið samband við Eimskip Flytjanda á hverjum stað.











Við hvern á maður að hafa samband ef aðmaður vill fá að hjálpa til við að yfirfara kassana,ég ásamt fleiri stelpum úr leiðtoga “deildinni” fengum að hjálpa í fyrra og mig langar svo að gera það aftur.
Sæl og blessuð Telma
Þú getur haft samband við mig í síma 861 4481 og við rætt málin.
Kveðja
Björgvin Þórðarson
Sæll
Hvernig er það nú er ég á Akureyri, hvar get ég skilað inn skókassa?
Kveðja
Jenný Grettisdóttir
Sæl og blessuð Jenný
Einstaklingar úti á landsbyggðinni geta snúið sér til Eimskip-Flytjandi, sem eru samstarfsaðilar okkar, og þeir sjá um að koma kössunum til okkar í Reykjavík.
Góðan dag, á síðunni stendur: Loka skiladagur er laugardagurinn 3. nóvember n.k. Þann dag verður tekið á móti kössum frá klukkan 11:00 til 16:00. Jafnframt verður myndasýning frá síðustu úthlutun og boðið upp á kaffi, gos og smá meðlæti.
Hins vegar kemur hvergi fram HVAR þetta er.
Kærar þakkir Aðalheiður fyrir þessa ábendingu. Lokaskiladagur verður í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg þann 3. nóvember frá kl. 11-16. Þessu hefur verið bætt við í klausunni fyrir ofan.