Útdeiling jólagjafa



Fulltrúar verkefnisins sem héldu utan nú um áramótin til að aðstoða við útdeilingu jólaskókassanna í Úkraínu komu til landsins á sunnudaginn var. Hér má sjá Soffíu Magnúsdóttur afhenda ungu barni jólagjöf.

Fulltrúar frá Jólum í skókassa komnir til Úkraínu

Þrír þátttakendur úr starfi KFUM og KFUK á Íslandi flugu til Úkraínu á nýársnótt til að aðstoða við útdeilingu jólagjafa í ár. Að þessu sinni fóru Salvar Geir Guðgeirsson, Mjöll Þórarinsdóttir og Soffía Magnúsdóttir. Þau skrifuðu á Facebook síðu verkefnisins í morgun.

Vid erum thrju uti nuna i Ukrainu, sem fulltruar verkefnisins. Logdum af stad a nyarsnott og komum a afangastad, i litlum bae vid Kirovograd, taepum solarhring sidar, threytt en sael. Uthlutudum fyrstu kossunum i gaer. Mikil gledi og eftirvaenting hja krokkunum. Vorum ad borda morgunmat nuna og erum a leidinni i fleiri uthlutanir. Allt gengur vel. Vedrid er gott. Kaerar kvedjur heim. Gledileg jol og gledilegt nytt ar.

Hægt er að fylgjast með ferðum þeirra á Facebook-síðu Jóla í skókassa.

Jólagjafirnar komnar til Úkraínu



Þær gleðifregnir bárust í dag að gámurinn með jólagjöfum fyrir börn og ungmenni í Úkraínu skilaði sér á leiðarenda í dag. Framundan er mikil vinna við að dreifa gjöfunum þar sem þeirra er þörf en nokkrir aðstandendur verkefnisins á Íslandi munu á næstu dögum halda til Úkraínu og taka þátt í því verkefni.

Lokatala fyrir árið 2011 er 4.175 kassar!!

Í kvöld mættum við nokkur á Holtaveginn í hús KFUM&KFUK til að fara yfir kassa sem að bárust of seint. Búið er að fylla gáminn, nánast troðfylla hann, loka honum og læsa. Á morgun fer hann í sitt langa ferðalag austur til Úkraínu. Lokatala fyrir árið 2011 er 4.175 kassar. Við erum mjög ánægð með þá tölu, þetta er tæplega 500 kössum meira en við fengum í fyrra. Kærar þakkir enn og aftur fyrir að taka þátt og gefa jólagjafir til þeirra sem að minna mega sín. Og svo mun verkefnið að sjálfsögðu verða í boði aftur næsta haust :)

Kærar þakkir!

Það myndaðist nánast öngþveiti við Holtaveginn í gær þegar fjöldi manna lagði leið sína í hús KFUM&KFUK í Laugardalnum til að skila skókössum með jólagjöfum fyrir börn í Úkraínu. Það var mikil stemning og dagurinn gekk mjög vel. Við sem stöndum að verkefninu unnum til kl. 1 í nótt og þá var búið að koma 3.954 kössum í gáminn og ganga frá húsinu. Við eigum samt von á nokkrum kössum til viðbótar eftir helgi frá nokkrum sem að gleymdu sér. Þá kemur endanleg tala í ljós. Við viljum þakka öllum þeim sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg við verkefnið og þeim sem að studdu það á einn eða annan hátt. Og síðast en ekki síst viljum við þakka öllum þeim sem að gáfu gjöf til Jól í skókassa í ár :) Við erum mjög þakklát fyrir gjafir ykkar.

Frábær dagur að baki

Lokaskiladagur Jóla í skókassa gekk framar vonum og í lok dagsins var búið að ganga frá 3954 jólagjöfum til barna í Úkraínu. Það voru glaðir en þreyttir aðstandendur verkefnisins sem héldu heim seint í gærkvöldi með þakklæti í hjarta til allra þeirra sem tóku þátt í verkefninu í ár.

Síðasti skiladagur Jól í skókassa er í dag, laugardaginn 12. nóvember

Í dag, laugardaginn 12. nóvember, er síðasti skiladagur fyrir verkefnið þetta árið. Þá er hægt að koma í hús KFUM&KFUK við Holtaveg 28, milli kl. 11:00 og 16:00, og skila skókassa. Þar mun fara fram sérstök myndasýning sem sýnir feril verkefnisins, léttar veitingar verða í boði í kaffiteríunni og hægt verður að setjast niður og lesa ferðasögur frá dreifingu kassanna frá liðnum árum. Allir eru hjartanlega velkomnir og við hlökkum til að sjá og hitta þá sem að sjá sér fært að mæta til okkar á síðasta móttökudeginum okkar.

Síðasti skiladagur Jól í skókassa er á morgun, laugardaginn 12. nóvember

Í dag, föstudag, hefur mikið verið að gerast í húsi KFUM&KFUK við Holtaveg. Hingað hafa streymt hópar frá grunn- og leikskólum með skókassa með jólagjöfum fyrir börnin og unglingana í Úkraínu. Meðal annars komu hópar frá leikskólunum Vinagarði og Regnboganum, og einnig fengum við heimsókn frá Mýrarhúsaskóla, Waldorfskólanum og Ölduselsskóla.

Á morgun, laugardaginn 12. nóvember, er síðasti skiladagur fyrir verkefnið þetta árið. Þá er hægt að koma í hús KFUM&KFUK við Holtaveg 28, milli kl. 11:00 og 16:00, og skila skókassa. Þar mun fara fram sérstök myndasýning sem sýnir feril verkefnisins, léttar veitingar verða í boði í kaffiteríunni og hægt verður að setjast niður og lesa ferðasögur frá dreifingu kassanna frá liðnum árum. Allir eru hjartanlega velkomnir og við hlökkum til að sjá og hitta þá sem að sjá sér fært að mæta til okkar á síðasta móttökudeginum okkar.

Síðasti skiladagur á Suðurnesjum er í dag, föstudaginn 11. nóvember

Vikan hefur liðið hratt og kassarnir streyma inn í aðalstöðvar KFUM&KFUK á Íslandi á Holtaveginum. Bæði eru einstaklingar að koma með skókassa og svo erum við líka að fá sendingar frá tengiliðum okkar úti á landi. Við höfum verið að vinna öll kvöld þessarar viku við að ganga frá kössum. Nú er búið að fara yfir u.þ.b. 1.000 kassa. Síðasti skiladagur í Reykjavík er á laugardaginn en hins vegar er síðasti skiladagur í dag á Suðurnesjum, og er það síðasti skiladagur úti á landi.

SUÐURNES:
Tekið verður á móti skókössum í húsi KFUM og KFUK í Reykjanesbæ, Hátúni 36, föstudaginn 11. nóvember frá 15-17.
Tengiliður er Brynja Eiríksdóttir (845-4531/421-5678).

Síðasti skiladagur á Akranesi er í dag, miðvikudaginn 9. nóvember

AKRANES:
Hægt verður að skila skókössum í húsi KFUM&KFUK, Garðabraut 1. Síðasti skiladagur er miðvikudagurinn 9. nóvember frá kl. 18:00-19:30.
Tengiliður er Irena Rut Jónsdóttir (868-1383).